Höfundur Elísabet Pálmadóttir
Búið til 2018-09-17 kl 19:48
Inspectionem hefur unnið endurskoðun brunavarnaáætlunar fyrir starfssvæði Slökkviliðs Langanesbyggðar, verkefnið var unnið fyrir Slökkvilið Langanesbyggðar í samstarfi við slökkviliðsstjóra sveitarfélagsins. Markmiðið með vinnunni er að fara yfir að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því eru falin. Aðferðin sem beitt var til að skoða áhættur og greina mannafla- og búnaðarþörf byggir á leiðbeiningum Mannvirkjastofnunar um mat á búnaðar og mannaflaþörf slökkviliða (6.053).
Áhættumat var unnið út frá þeim mannvirkjum og starfsemi sem er í sveitarfélaginu. Þær áhættur sem taldar voru mótandi fyrir stærð slökkviliðsins voru greindar nánar með tilliti til þess hvaða kröfur þær geri til fjölda slökkviliðsmanna og búnaðar sem nota þurfi vegna viðbragðs við atvikum þeim tengdum.
Áætlunin hefur verið samþykkt af sveitarstjórnum Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps og Mannvirkjastofnun og var undirrituð 24. ágúst 2018.
Brunavarnaáætlunin er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.langanesbyggd.is.
Inspectionem vinnur að áhættugreiningum, mati á búnaðar og mannaflaþörf, gerð brunavarnaáætlana og endurskoðun brunavarnaáætlana fyrir fleiri viðskiptavini.
Guðmund Gunnarsson, veitir frekari upplýsingar í s. 5888786