Breytingar á byggingarreglugerð
Höfundur
Elísabet Pálmadóttir
Búið til
2019-01-14 kl 11:10
Með breytingunni er lögð sú skylda á mannvirkjahönnuði að gera ráð fyrir hleðslu rafbíla við ákveðinn lágmarksfjölda bílastæða við annað húsnæði en íbúðarhúsnæði, en kröfur er varða íbúðarhúsnæði eru nú þegar til staðar í reglugerðinni. Þannig er lögð enn frekari áhersla á mikilvægi orkuskipta í samgöngum með hliðsjón af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Þá er einnig m.a. gerðar eftirfarandi breytingar á reglugerðinni:
- Felld er niður krafa um að allir séruppdrættir vegna mannvirkjagerðar liggi fyrir við útgáfu byggingarleyfis og dregið úr kröfum um ábyrgðaryfirlýsingar meistara.
- Ákvæði um eftirlit Mannvirkjastofnunar með störfum hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara og gæðastjórnunarkerfum eru gerð skýrari.
- Aukin áhersla er lögð á innra eftirlit hönnuða og skráningu niðurstaðna eftirlits í gæðastjórnunarkerfi auk þess sem áhersla er lögð á gæðastjórnun og ábyrgð byggingarstjóra.
- Meginreglan er nú sú að byggingarstjóri annast áfangaúttektir og eru stöðuskoðanir nú framkvæmdar af leyfisveitanda eða skoðunarstofu. Þá er gert ráð fyrir að byggingarstjóri geti veitt öðrum umboð í ákveðnum tilvikum til að mæta í eða annast áfangaúttektir.
- Leyfisveitanda er nú heimilt við eftirlit að beita úrtaksskoðun í stað alskoðunar.
- Felld hefur verið niður krafa um faggildingu vegna áfangaúttekta í ljósi þess að byggingarstjórum er falið það verkefni að meginstefnu til.
Bætt hefur verið inn í byggingarreglugerðina
hér þessum nýjustu breytingum sem eru 8. breytingar á byggingarreglugerð 112/2012 og tóku gildi þann 21. desember 2018.
Reglugerð um (8.) breytingu á byggingarreglugerð nr. 112/2012