L11-1.4. Lýsing

Yfirkafli: L11-1. Reglur um vistun, takmörkun vistunarkerfis og ónýtingu skjala

Þeir sem eru ábyrgir fyrir einhverri starfsemi bera ábyrgð á að búnar séu til verklagsreglur fyrir sín ábyrgðarsvið. Þegar verklagslýsing er útbúin þarf að aðgæta að kröfum í lögum og reglugerðum sé mætt.

Allar verklagsreglur eru skrifaðar í gagnagrunn gæðakerfisins á heimasíðu Inspectionem ehf.
Öll skjöl eru dagsett og samþykkt af framkvæmdastjóra og tæknilegum stjórnanda Inspectionem ehf.

Verklagsreglunni er lýst með eftirfarandi fimm punktum:
1. Tilgangur
Lýsir hver ætlunin er með verklagslýsingunni.
2. Umfang
Lýsir ytri mörkum þess sem verklagslýsingunni er ætlað að ná til.
3. Ábyrgð
Lýsir hvaða starfsfólk (einungis með starfsheiti) sem á að fara eftir verklagslýsingunni í sinni vinnu.
4. Lýsing
Lýsir ferlinu, þeas. því mynstri sem farið er eftir þegar verkefni eða hópur verkefna eru leyst.
5. Tilvísanir
Hér er settur upp listi yfir verklagslýsingar, leiðbeiningar og eyðublöð innan eftirlitskerfisins sem tengjast verklagslýsingunni.