V16-3.4. Lýsing

Yfirkafli: V16-3. Eftirlit með framkvæmdum

Móttaka og skráning
Verkefni sem berast eru móttekin og skráð samkvæmt L14-1 Gæðatrygging í verkefnum - handbók. Öll gögn og samskipti eru vistuð í skjalavistunarkerfi.

Meðferð móttekinna gagna vegna yfirferðar hönnunargagna
Gögn eru móttekin á tölvutæku formi og varðveitt í skjalasafni Inspectionem ehf. Haldin er skrá yfir móttöku gagna, E16-8 þar sem skráð eru númer og útgáfur þeirra gagna sem afhent eru vegna eftirlits með framkvæmdum.

Eftirlit með framkvæmdum
Starfsmaður gengur úr skugga um að öll nauðsynleg gögn hafi borist og fyllir út í skoðunarhandbók Áfangaúttekt, Öryggisúttekt eða Lokaúttekt eftir því sem við á sem vistuð er í skjalavistunarkerfi í samræmi við fyrirmæli Mannvirkjastofnunar. Úttektir við lok niðurrifs mannvirkis eru framkvæmdar í samræmi við fyrirmæli Mannvirkjastofnunar og skoðunarskýrslur skráðar á því formi sem Mannvirkjastofnun gerir kröfu um.
Ef gögn vantar eða þau eru ófullnægjandi er verkkaupa tilkynnt um það og tilkynningin skráð. Ef gögn berast ekki innan þess frests sem tilgreindur hefur verið er verkinu lokið með stöðunni ófullnægjandi niðurstaða. Ef gögn sýna að framkvæmdin uppfyllir ekki þau skilyrði sem eru sett er það tilkynnt Mannvirkjastofnun.
Ef öll skilyrði hafa verið uppfyllt lýkur skoðunarmaðureftirliti með fullnægjandi niðurstöðu.

Reikningur
Framkvæmdastjóri útbýr reikninga í heimabanka. Eftir að greiðsla hefur borist er kvittun útbúin og vistuð með gögnum verkefnisins.
Eftirlit með framkvæmdum eftir gerð úttektar er tilkynnt til Mannvirkjastofnunar þegar greiðsla hefur borist.

Skil eftirlits með framkvæmdum til Mannvirkjastofnunar
Eftir að greiðsla hefur borist er eftirlit með framkvæmdum eftir gerð úttektar tilkynnt til Mannvirkjastofnunar og verkefninu lokið af hálfu Inspectionem ehf. Skráð er undir verkefninu að afhending hafi farið fram.

Ágreiningur
Komi upp ágreiningur um tæknileg atriði við túlkun skoðunarhandbókar og um tilhögun eftirlits á grundvelli hennar skal leita álits Mannvirkjastofnunar.