V16-4.4. Lýsing

Yfirkafli: V16-4. Eldvarnaeftirlit

Móttaka og skráning
Verkefni sem berast eru móttekin og skráð samkvæmt L14-1 Gæðatrygging í verkefnum - handbók. Öll gögn og samskipti eru vistuð í skjalavistunarkerfi.

Meðferð móttekinna gagna vegna yfirferðar hönnunargagna
Gögn eru móttekin og varðveitt í skjalasafni Inspectionem ehf. Haldin er skrá yfir móttöku gagna, E16-8 þar sem skráð eru númer og útgáfur þeirra gagna sem afhent eru til yfirferðar.

Eldvarnaeftirlit
Starfsmaður gengur úr skugga um að öll nauðsynleg gögn hafi borist. Hann fyllir út í skoðunarhandbók sem vistuð er í skjalavistunarkerfi í samræmi við fyrirmæli Mannvirkjastofnunar.
Ef gögn vantar eða þau eru ófullnægjandi er verkkaupa tilkynnt um það. Ef gögn berast ekki innan þess frests sem tilgreindur hefur verið er verkinu lokið með stöðunni ófullnægjandi niðurstaða. Ef gögn sýna að eldvarnir uppfylla ekki þau skilyrði sem eru sett er það tilkynnt viðkomandi slökkviliði.
Ef öll skilyrði hafa verið uppfyllt lýkur skoðunarmaður skoðuninni sem fullnægjandi niðurstaða.

Reikningur
Framkvæmdastjóri útbýr reikninga í heimabanka. Eftir að greiðsla hefur borist er kvittun útbúin og vistuð með gögnum verkefnisins.
Niðurstaða eldvarnaeftirlits er send til slökkviliðs þegar greiðsla hefur borist.

Skil eldvarnaeftirlits til slökkviliðs
Eftir að greiðsla hefur borist er eftirlitið tilkynnt til slökkviliðs og verkefninu lokið af hálfu Inspectionem ehf. Skráð er undir verkefninu að afhending hafi farið fram.

Ágreiningur
Komi upp ágreiningur um tæknileg atriði við túlkun skoðunarhandbókar og um tilhögun eftirlits á grundvelli hennar er leitað álits Mannvirkjastofnunar.