V16-5.4. Lýsing

Yfirkafli: V16-5. Rafmagnsöryggi

Móttaka og skráning
Verkefni sem berast eru móttekin og skráð samkvæmt L14-1 Gæðatrygging í verkefnum - handbók. Öll gögn og samskipti eru vistuð í skjalavistunarkerfi.

Meðferð móttekinna gagna vegna eftirlits með rafmagnsöryggi
Móttekin gögn eru varðveitt í skjalasafni Inspectionem ehf. Haldin er skrá yfir móttöku gagna, E16-8 þar sem skráð eru númer og útgáfur þeirra gagna sem afhent eru til yfirferðar.

Eftirlit með rafmagnsöryggi
Starfsmaður gengur úr skugga um að öll nauðsynleg gögn hafi borist og fyllir út í skoðunarhandbók sem vistuð er í skjalavistunarkerfi í samræmi við fyrirmæli Mannvirkjastofnunar.
Ef gögn vantar eða þau eru ófullnægjandi er verkkaupa tilkynnt um það og tilkynningin skráð. Ef gögn berast ekki innan þess frests sem tilgreindur hefur verið er verkinu lokið með stöðunni ófullnægjandi niðurstaða.
Við skoðun á innra öryggisstjórnunarkerfi rafveitna og framkvæmd þess er unnið eftir reglum um skoðun innri öryggisstjórnunar rafveitna (Skoðunarreglur og Athugasemdir). Farið er með niðurstöður og skoðunarskýrslur samkvæmt fyrirmælum Mannvirkjastofnunar VL 3.027.
Við skoðun á innra öryggisstjórnunarkerfi rafverktaka og framkvæmd þess er unnið eftir reglum um skoðun innri öryggisstjórnunar rafverktaka (Skoðunarreglur og Athugasemdir). Farið er með niðurstöður og skoðunarskýrslur samkvæmt fyrirmælum Mannvirkjastofnunar VL 3.027.
Við skoðun á aðstöðu og búnaði rafverktaka er farið eftir fyrirmælum Mannvirkjastofnunar.
Við skoðun á rafföngum og raforkuvirkjum á markaði er farið eftir reglum um skoðun neysluveitna (Skoðunarreglur og Athugasemdir) og reglum um skoðun raffanga (Skoðunarreglur). Farið er með niðurstöður og skoðunarskýrslur samkvæmt fyrirmælum Mannvirkjastofnunar VL 3.027.

Reikningur
Framkvæmdastjóri útbýr reikninga í heimabanka. Eftir að greiðsla hefur borist er kvittun útbúin og vistuð með gögnum verkefnisins.

Skil á niðurstöðum til Mannvirkjastofnunar
Eftir að greiðsla hefur borist er niðurstöðum er skilað til Mannvirkjastofnunar og verkefninu lokið af hálfu Inspectionem ehf. Skráð er undir verkefninu að afhending hafi farið fram.

Ágreiningur
Komi upp ágreiningur um tæknileg atriði við túlkun skoðunarhandbókar og um tilhögun eftirlits á grundvelli hennar skal leita álits Mannvirkjastofnunar.