V16-6.4. Lýsing

Yfirkafli: V16-6. Byggingarvörur

Móttaka og skráning
Verkefni sem berast eru móttekin og skráð samkvæmt L14-1 Gæðatrygging í verkefnum - handbók. Öll gögn og samskipti eru vistuð í skjalavistunarkerfi.

Meðferð móttekinna gagna vegna markaðseftirlits með byggingarvörum
Gögn eru móttekin á tölvutæku formi og varðveitt í skjalasafni Inspectionem ehf. Sýnishorn sem koma eru merkt og varðveitt í læstri geymslu. Haldin er skrá yfir móttöku gagna, E16-8 þar sem skráð eru númer og útgáfur þeirra gagna sem afhent eru til yfirferðar. Að lokinni rannsókn er sýnishornum skilað eða þau eyðilögð með öruggum hætti.

Markaðseftirlit með byggingarvörum
Starfsmaður gengur úr skugga um að öll nauðsynleg gögn hafi borist og fyllir út í skoðunarhandbók sem vistuð er í skjalavistunarkerfi í samræmi við fyrirmæli Mannvirkjastofnunar.
Ef gögn vantar eða þau eru ófullnægjandi er verkkaupa tilkynnt um það og tilkynningin skráð. Ef gögn berast ekki innan þess frests sem tilgreindur hefur verið er verkinu lokið með stöðunni ófullnægjandi niðurstaða. Notaðar eru þær skoðunarhandbækur sem Mannvirkjastofnun gefur út. Að lokinni skoðun lýkur skoðunarmaður skýrslu um markaðseftirlit í samræmi við samning um markaðseftirlitið.

Reikningur
Framkvæmdastjóri útbýr reikninga í heimabanka. Eftir að greiðsla hefur borist er kvittun útbúin og vistuð með gögnum verkefnisins.

Skil gagna vegna markaðseftirlits til Mannvirkjastofnunar
Skýrsla um markaðseftirlit er send Mannvirkjastofnun í samræmi við ákvæði samnings.

Ágreiningur
Komi upp ágreiningur um tæknileg atriði við túlkun skoðunarhandbókar og um tilhögun eftirlits á grundvelli hennar skal leita álits Mannvirkjastofnunar.