3. Skilgreiningar
Útgáfa: 2
Staðfest af gæðaráði þann 10. 07 2018 10:23
Yfirlit
- Gæði.
Sameiginlegt heiti yfir alla þá eiginleika einingar sem ákvarða getu hennar til að uppfylla tilgreindar og ótilgreindar þarfir.
- Gæðatrygging.
Allar skipulegar og kerfisbundnar aðgerðir sem ráðist er í innan gæðakerfisins eru sýndar og útskýrðar eins og nauðsynlegt er, til að vekja nægilegt traust á því að eining muni uppfylla gæðakröfur.
- Gæðastýring.
Starfsaðferðir og starfsemi sem miða að því að uppfylla kröfur um gæði.
- Verklagsregla.
Tiltekin aðferð til að inna af hendi starfsemi.
- Gæðakerfi.
Stjórnskipulag, skipting ábyrgðar, verklagsreglur, ferli og aðföng sem nauðsynleg eru til að koma á gæðastjórnun.
- Gæðaúttekt.
Kerfisbundin athugun, unnin af óháðum aðilum, sem hefur þann tilgang að skera úr um hvort starfsemi sem miðar að gæðum og niðurstöður slíkrar starfsemi séu í samræmi við það skipulag sem áætlað var og hvort skipulagið sé virkt og henti til þeirra nota sem því var ætlað.
- Sannprófun.
Staðfesting með athugun og með því að leggja fram hlutlægar sannanir á því að tilteknum kröfum hafi verið fullnægt.
- Verktaki.
Birgir í samningsbundnum viðskiptum.