3. Skilgreiningar

Útgáfa: 1

Staðfest af gæðaráði þann 15. 11 2017 19:24

Yfirlit


  • Gæði
  • Sameiginlegt heiti yfir alla þá eiginleika einingar sem ákvarða getu hennar til að uppfylla tilgreindar og ótilgreindar þarfir.
  • Gæðatrygging
  • Allar skipulegar og kerfisbundnar aðgerðir sem ráðist er í innan gæðakerfisins eru sýndar og útskýrðar eins og nauðsynlegt er, til að vekja nægilegt traust á því að eining muni uppfylla gæðakröfur.
  • Gæðastýring
  • Starfsaðferðir og starfsemi sem miða að því að uppfylla kröfur um gæði.
  • Verklagsregla
  • Tiltekin aðferð til að inna af hendi starfsemi.
  • Gæðakerfi
  • Stjórnskipulag, skipting ábyrgðar, verklagsreglur, ferli og aðföng sem nauðsynleg eru til að koma á gæðastjórnun.
  • Gæðaúttekt
  • Kerfisbundin athugun, unnin af óháðum aðilum, sem hefur þann tilgang að skera úr um hvort starfsemi sem miðar að gæðum og niðurstöður slíkrar starfsemi séu í samræmi við það skipulag sem áætlað var og hvort skipulagið sé virkt og henti til þeirra nota sem því var ætlað.
  • Sannprófun
  • Staðfesting með athugun og með því að leggja fram hlutlægar sannanir á því að tilteknum kröfum hafi verið fullnægt.
  • Verktaki
  • Birgir í samningsbundnum viðskiptum.