Aftur í: 6.10. KAFLI. Hótel, gististaðir, heimavistir, stúdentagarðar, hjúkrunarheimili o.þ.h.
Ákvæði 6.10. kafla gilda fyrir húsnæði þar sem rekin er gististarfsemi, svo sem hótel, gistiheimili, gistiskála og hvers kyns dvalarheimili og heimavistir, þ.m.t. stúdentagarða, hjúkrunarheimili, hvíldar- og hressingarheimili, dvalarheimili og sjúkrahús .
Stærð og fjöldi lyfta skal taka mið af starfseminni, en þó ávallt uppfylla lágmarkskröfur þessarar reglugerðar um lyftur .
[]3)
Gistiherbergi og baðherbergi þeirra sem ætluð eru hreyfihömluðum skulu uppfylla eftirfarandi kröfur:
a. [Hindrunarlaus umferðarbreidd allra dyra að íbúðar- og baðherbergjum skal minnst vera 0,80 m að breidd og 2,00 m að hæð.]3).[]1)
b. [Baðherbergi skal uppfylla kröfur um aðgengi fyrir hreyfihamlaða.]1)
c. Baðherbergishurð skal opnast út eða vera rennihurð .
d. Innan bæði herbergis og baðherbergis skal vera hindrunarlaust athafnarými, a.m.k. 1,50 m að þvermáli [eða 1,30 m x 1,80 m]3).
e. Baðaðstaða skal vera þrepa- og þröskuldalaus .
f. [Í gistiherbergjum sem hönnuð eru á grundvelli algildrar hönnunar skal þannig gengið frá aðkomu að svölum að þröskuldur/kantur sé eigi hærri en 25 mm. [Hindrunarlaus umferðarbreidd allra svala- og garðdyra skal minnst vera 0,80 m og 2,00 m að hæð.]3)]2)
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]3) skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar .
1) Rgl. nr. 1173/2012, 36. gr.
2) Rgl. nr. 350/2013, 34. gr.
3) Rgl. nr. 977/2020, 2. gr. 3) Rgl. nr. 977/2020, 22. gr.
Athugið að ef textanum hér ber ekki saman við reglugerðina á vef Stjórnartíðinda, þá gildir reglugerðin á vef Stjórnartíðinda. Skjalið er með uppfærðum breytingum sem samþykktar voru í desember 2012 sbr. reglugerð nr. 1173/2012, apríl 2013 sbr. reglugerð nr. 350/2013, mars 2014 sbr. reglugerð nr. 280/2014, apríl 2016 sbr. reglugerð nr. 360/2016, í júlí 2016 sbr. reglugerð nr. 666/2016, ágúst 2017 sbr. reglugerð 722/2017, í júní 2018 sbr. reglugerð 669/2018, í desember 2018 sbr. reglugerð 1278/2018 og í október 2020 sbr. reglugerð 977/2020.