L14-1.3.1. Verkefnastjórnun
Yfirkafli: L14-1.3. Stjórnun
Verkefnisstjóri er tilgreindur í tilboðsgögnum. Þegar samningur hefur verið gerður er það hlutverk verkefnisstjóra að:
- Skýra gæðastjóra frá samningnum.
- Endurskoða og uppfæra verkáætlun ásamt því að búa til nákvæmari verkáætlun og verklagslýsingar.
- Gefa út lýsingu á umfangi verks undirverktaka (Scope of Work).
- Ganga úr skugga um að allir í verkefnishópnum, þar með taldir undirverktakar, þekki innihald Gæðatryggingarhandbókarinnar.
- Setja upp möppu fyrir skjalavistun verkefnisins.
- Útnefna ábyrgðaraðila fyrir verkþætti.
- Gefa út nauðsynlegar verkefnisleiðbeiningar til allra meðlima verkefnishópsins.
- Sjá til þess að nauðsynleg útlitsskjöl séu til fyrir alla meðlimi verkefnishópsins þannig að þeir geti uppfyllt þær kröfur sem til þeirra eru gerðar í Gæðatryggingarhandbókinni.
- Ganga úr skugga um að meðlimir verkefnishópsins séu ekki yfirbókaðir og að þeir þekki verkefnið og þá verkþætti sem þeir eiga að vinna að.
- Komast að samkomulagi við þann sem er gæðastjóri verkefnisins um framvindu og framkvæmd gæðatryggingar í verkefninu.